Skilmálar

Home4u á alltaf vinsælustu vörurnar alltaf á lager. Sýningarsalurinn okkar er í Miðhrauni 22B og þar erum við með vörur frá flestum birgjum okkar til sýnis.

Pöntunarferlið ef um sérpöntun er að ræða

Home4u/seljandi afhendir vörurnar eins fljótt og hægt er eftir að kaupandi hefur staðfest með greiðslu. Kaupandi fær áætlaðan tímaramma á afhendingu frá seljanda.  Við miðum oftast við 2-4 vikur.

greiðsla við sérpöntun er 50% af áætluðu verði.

Verði töf á afhendingu mun seljandi reyna eftir bestu getu að upplýsa kaupanda sem allra fyrst.  Töf á afhendingu orsakast oftast vegna tafa í framleiðslu, töfum á fraktsendingum eða vegna tollafgreiðslu.  Ef töf verður á afhendingu vegna utanaðkomandi ástæðna getur seljandi ekki bætt fjárhagslegt tjón ef slíkt verður.

Home4u er ekki flutningsfyrirtæki heldur verslun

 

Vöru afhending

Kaupandi sækir vörurnar sínar til okkar í Miðhraun 22B eða velur að fá sent með Dropp eða póstinum gegn sendingargjaldi.

Home4u er ekki með útkeyrslu á vörum nema sérstaklega sé beðið um það og greitt fyrir það.

Þegar vörurnar eru komnar og tilbúnar til afhendingu þá hefur kaupandi 10 daga til að sækja vörurnar, eftir það þá fer í gang geymsugjald.  Ástæðan fyri því er einföld, við erum með lítið húsnæði og getum ekki verið með heilu brettin í geymslu í lengri tíma.

Geymslugjald 720kr per dag / verð ekki með vsk

 

Afpöntun

Ekki er hægt að afpanta eða hætta við eftir að seljandi hefur greitt fyrir vöruna hjá framleiðanda og fengið vörurnar af stað erlendis,nema skv samkomulagi við Home4u ,  sé ósk um slíkt fæst innborgun ekki endurgreitt og Home4u eignast vöruna án endurgreiðslu.

 

Skil á útsöluvörum.

Ekki er hægt að skila útsöluvörum en það er hægt að skipta og fá aðra útsöluvöru í stað hennar.

 

Verð og verðbreytingar

Öll verð á vefnum eru gefin upp í Íslenskum krónum og með virðisaukaskatti.  Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust vegna rangra upplýsinga eða skráninga.

 

Greiðsluleiðir:

Það er hægt að greiða með öllum helstu greiðslukortum, ásamt Netgíró

 Takmarkanir á ábyrgð

Ef um ræðir sölu til fyrirtækis þá er ábyrgð á galla 1 ár

Gildir ekki um eðlilegt slit vegna notkunar

Gildir ekki ef tækið hefur verið opnað eða átt við það

Gildir ekki ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar eða samsetningar

 

Skil á vöru / endurgreiðsla

Ef í ljós kemur að vara er gölluð eða skemmd við afhendingu þá mun Seljandi hafa samband við framleiðanda og fara fram á endurgreiðslu.  Kaupandi fær endurgreidda vöruna á sama tíma og Seljandi.  Ekki er hægt að fá vöruna endurgreidda ef umbúðir hafa verið opnaðar/skemmdar.